Ég bjó til lampa samsettan úr laserskornum formum með þrívíddarprentuðum klemmum,
Ég byrjaði á því að teikna upp formið sem ég ætlaði að byggja lampann á,
Síðan tók ég eina hliðina af lampanum, Reiknaði út hallann á samskeytinu og teiknaði klemmu sem ég taldi passa.
Teiknaði síðan formið, Athugaði að allt passi saman og færði formið yfir í Inkscape og laserskar öll formin sem vantaði.
Tók síðan teikninguna af klemmunum úr Fusion 360 og prentaði.
Setti síðan að lokum allt saman með því að renna klemmunum upp á plexyglerið,